Hraðar, hærra, lengra.....

Dagbók Ásu íþróttaálfs sem ættlar að labba í Everest base camp, læra að sigla kajak, renna sér á snjóbretti, skoða Nýja Sjáland og Ástralíu, Nepal, Kína, Indland, Suður Ameríku, Afríku, Króatíu og kannski líka Tunglið. Vera brimbrettagella á bikiníi, labba á fjöll, læra að kafa, veiða fiska og fugla og allt hitt sem henni dettur í hug. Bara ef að það er hraðar, hærra eða lengra en hún hefur gert áður....

Wednesday, August 02, 2006

Of eða van...

Ekki verið mikið heima undanfarnar vikur og því ekki mikið að sinna netheimunum, nóg að gera annað. Svo ýmist er of mikið að gera og enginn tími, eða ekkert að gera, nægur tími og ekkert að skrifa um.

En til að gera langa sögu stutta er ég búin að labba um í Fjörðunum, 4 daga um eyðibyggðir milli Eyjafjarðar og Skjálfanda, fara og passa hálendið í viku, baka ósköpin öll af hjónabandssælu og súkkulaðismákökum með hvítum doppum, hlaupa 7 km án þess að gefa upp öndina (reyndar ein pása á Slökkvistöðinni til vökvunar og hressingar á miðri leið, en hei, samt 7 helv.. kílómetrar!), gera Kalla kanínu að dekurdýri sem borðar bara lífrænt ræktuð epli en ekki venjuleg, skipuleggja vaktaskema vetrarins, sýna Daan Laugarfell og hálendið og senda hann heim til Hollands reynslunni ríkari, og með bílpróf og nær altalandi á íslenska tungu.

Og svo er aðal sumarfríð að hefjast, fyrst 4 dagar í Herjólfsdal (jú, ég er að fara á mína fyrstu skipulögðu útihátíð, 33 ára gömul) og svo 10 dagar á Ítalíu. Drekka brennivín í Eyjum og borða tómata og ís í ítölsku sólinni. Gelatto, gelattto, gelatto. Mi piache.

Set inn póst um ferðalög skýjaglópsins þegar ég stoppa fyrir alvöru, því nú er komið að því að prófa eitthvað nýtt. Hærra, hraðar, lengra.

ANDIAMO!!!!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home