Hraðar, hærra, lengra.....

Dagbók Ásu íþróttaálfs sem ættlar að labba í Everest base camp, læra að sigla kajak, renna sér á snjóbretti, skoða Nýja Sjáland og Ástralíu, Nepal, Kína, Indland, Suður Ameríku, Afríku, Króatíu og kannski líka Tunglið. Vera brimbrettagella á bikiníi, labba á fjöll, læra að kafa, veiða fiska og fugla og allt hitt sem henni dettur í hug. Bara ef að það er hraðar, hærra eða lengra en hún hefur gert áður....

Saturday, August 25, 2007

Sumarið kom yfir sæinn..... og fór aftur....

Hvað er þettað með sumarið? Stittist það alltaf eða er ég orðin skrýtin? Í gamla daga breyddi það úr sér endalaust framundan og svo leið heil eilífð áður en haustið kom með frostnóttum og rökum litum... Sennilega er ég bara orðin gömul, annað sem bendir til þess er að ég sá einhvern gamlan kall með grátt í vöngum skokka framhjá mér í gær, og þegar að hann veifaði þá var þettað skólabróðir minn, nokkrum árum yngri....

En hér er ekki mikið að gerast, alltaf sama gamla vinna og leika sér, ekkert að frétta frá Kína nema að umsóknin mín ku þokast uppávið í bunkanum á þessu rosalega stóra skrifborði hjá ættleiðingayfirvöldum... Leik mér stundum að því að hugsa um hversu marga fermetra þar af skrifborði undir 45.000 umsóknir, en það er ekki alveg sniðugt því að næsta hugsun er stundum sú að umsóknin mím liggji á vitlausum stað eða detti á gólfið og ég fái alldrei barn og þá fer maður littl að ofanda og pannikera og svona.... Svo vopnuð brúnum bréfpoka er ekki annað að gera en að bíða og anda rólega inn og út og vona að allt sé í röð og reglu á skrifborðinu ógurlega...(bídd'aðeins, hvar er helv.. pokinn..??..).

Ok. Sumarskýrlsa. Í júni gerði ég lítið annað en að vinna, sinna ölvuðum unglingum á bráðamóttökunni á Bíladögum, hjóla um bæinn þegar gafst tími, brumma um á nýja fallega bílnum mínum, byggja ljótasta kanínubúr veraldarsögunnar og undirbúa sumarfrí í júli. Júlí fór í fjölskylduferð til USA/Kanada og að knúsa littlu frænku (sem er í alvörunni sætasta barn í heimi, bara svo að það komi fram) og njóta lífsins. Við Andri frændi fórum hringinn og gistum í tjaldi á mismunandi bílastæðum-hvað er þettað með húsbíla/fellihýsa/hjólhýsa-geðveikina sem hrjáir alla? Á sumum stöðum er varla gert ráð fyrir því að maður tjaldi lengur, og þegar maður spyr um tjaldstæði á íslensku fara allir að hlæja.... Aftur að vinna í tvær vikur í ágúst, náði næstum því að vinna upp halann af pappír, imagin that, og svo aftur í frí. Í fylgd góðra vina staulaðist ég Laugarveginn-alltsvo Landmannalaugar - Þórsmörk, og bar úr býtum gríðarlega strengi og skemmdar neglur á tásum....(muna: ekki labba tvær dagleiðir á einum degi, ekki pakka svona þungan poka, ekki æfa sig með því að sitja í sófanum og borða snikkers....).

Og svo er sumarið bara búið... Í kvöld er Akureyravaka, svo er vinna aftur á mánudag og þá er allt bara búið...hvert fór sumarið eiginlega????

Wednesday, August 01, 2007

Blogg.
Kvartanir hafa borist um að ég sé ekki nógu dugleg að blogga. Mikið rétt.



Svo hér er blogg.



Bloggbloggbloggblogg.....

Tuesday, June 05, 2007

La notte é silenziosa e nel suo silenzio si nascondono i sogni....

(Nóttin er hljóð og í þögninni dyljast draumarnir.....)

Merkileg speki úr ítölskum nammikossum. En það er sama hvaðan gott kemur ekki satt? Sum kvöld á ekkert betur við en væmin speki úr "Bachi di amore".... Vona að þið njótið vel.

Monday, May 14, 2007

Langt síðan síðast.....

Vinna, vinna, vinna, vinna, vinna. Og vinna meira. Giskaðu á hvað ég er að gera? Vinna, aldrei þessu vant???

En vorið er komið og ég er alveg við það að komast í sumarfrí. Megaplön, hef bara engan tíma til að vera að standa í þessari vinnu alltaf hreint, vantar bara góða fyrirvinnu eða vísakort með einstreymisloka og ótakmarkaðri heimild.... USA, Kanada, Noregur, kannski Ítalía-hvernig á ég að anda næsta vetur ef ég kemst ekki þangað??? Og ekki gleyma Íslandi. Var að fá nýja Tusconinn minn, svartann og pæjulegan með sólgleraugngeymslu og dökkum rúðum..... Micran seldist svo hratt að ég gat ekki einu sinni sagt bless, en hún fékk víst gott heimili sagði sölumaðurinn svo ég er hætt að skæla. Vissi samt ekki að það væri svona auðvelt að venjast því að bíllinn manns fari í gang í fyrsta og sætishiti...mmm, hverngi er hægt að lifa án þess? Svo núna er ég að plana hálendisferðir fram og aftur, labba Laugarveginn í ágúst, kajak á Langasjó, Herðubreiðarlindir, Askja, Laugarfell, Þórsmörk, Flateyjardalurinn, Mývatnssveit. Og allt.

Frænka í ameríku er orðin eins árs og líkist mér alltaf meira og meira-gvuð hvað hún er sæt! Fæ að sjá hana í júlí og hafa Andra og Sonju í júní og kannski eitthvað í ágúst. Broskarlar á dagatalinu alla daga í sumar, nema þegar að ég er að vinna. Til skiptis á vakt og flugvakt, sef bara í haust.....




Lína á þríhjólinu sem amma gaf henni......

Sunday, December 31, 2006

Far vel 2006

Nú árið er liðið í aldanna skaut etc etc. Ákvað í fyrra á þessum tíma að gera hlutina öðruvísi. Ákvað að vera ekki hrædd, vera ekki með áhyggjur af því hvað hinum fyndist, vera bara ég og prófa. Allt. Ekki segja nei við neinu sem var í boði, ekki bakka inn í skel og þora ekki því eihverjum öðrum gæti þótt það lummó, halló eða hvað sem er. Þora, vilja, geta. Áfram hraðar, hærra og lengra.

The year of living dangerously. Tókst bara nokkuð vel, gerði allskonar hluti sem ég hef ekki gert áður, prófaði eitthvað nýtt í hverjum mánuði og það var svo gaman...... Snjóbrettast með Daan, gracie mille fyrir kennsluna..., kajakferðir, gönguferðir, hlaupa og hjóla og dansa og tjútta. Fóstra kanínu, grilla í snjókomu, horfa á stjörnurnar og norðurljósin og sólina og tunglið. Ferðast. Vestmanneyjar, Ítalía, Ísland, heimurinn er leikvöllurinn minn og ég er fær um allt.....

Ár til að eignast nýa vini, ár til að kynnast gömlu vinunum betur, ár til að knúsa og faðma og gefa öllum að borða sem mér þykir vænt um. Ár til að þykja vænt um fólk og þora að segja það upphátt.... Ár til að prófa eitthvað nýtt og vera ekki hrædd við það óþekkta, ár til að breyta þvi hver ég er og skilgreina upp á nýtt, ár til að reyna á þolrifin og ýta á markalínurnar, stytta bilið milli þess sem ég er og vil vera. The year of living dangerously.

Hvernig hljómar "the second year of living dangerously"???

Monday, December 25, 2006

Jólablogg...

Eru ekki komin jól einu sinni enn? Ekki búin að vera neitt sérstaklega mikið í jólastuði undanfarið, nennti ekki að baka smákökur, nennti ekki að vinna, nennti ekki neinu. Sennilega kominn tími á smá frí. Foreldrarnir stóðu sig nú samt vel, mamma eldaði jólarjúpur með hefðbundnum hætti, nammi namm. Endir samt bundinn á jólastemminguna klukkan hálf átta, kölluð út í sjúkraflug og kom ekki heim fyrr en undir miðnætti. Rétt náið að knúsa gömlu og oppna pakkana og fara svo heim að sofa. Önnur tilraun í kvöld, ættlum að elda önd og alles. Vona að heilsufarið á þjóðinni verði betra svo að ég geti haft það náðugt, alltaf sama letin í mér.

Er samt ekki alveg að fíla jólin eins og þau eru orðin. Hvað varð um það að allt ætti að vera afslappa? Er það alveg gleymt? Sat í fílukasti á þorláksmessu, alveg búin að fá upp í kok af æsingnum og eyðslunni, heimtufrekjunni og stressinu á öllum. Búin að ákveða að næstu jól fer ég í Bónus 22. des, kaupi vel af mat, set í húsbílinn hans pabba og keyri þangað til ég finn staðinn þar sem myrkrið er dimmast og slekk á gemmsanum og læt ekki sjá mig fyrr en á annan í jólum. Nú þegar eru komnir 4 sem ættla með, svo sennilega verðum við að fara á tveimur bílum...

Ása skröggur.

Thursday, August 31, 2006

Eyjar. Myndirnar tala sínu máli....



Ferðafélagarnir við "neyðarskýlið" sem sett var upp fyrir hópinn inni í dal (a.k.a. "shaggtjaldið"). Vil taka það fram að léleg nýting var á því af mynni hálfu....


Almenn gleði ríkti og ölið var kneifað.


En stundum verður maður þreyttur og þá er ekki verra að leggja sig obbolittla stund á öxlinni á vini sínum og hlusta á brekkusönginn.


Svo var skroppið í útsýnisgöngutúr.



Horft inn Herjólfsdal að morgni mánudags eftir vel heppnaða helgi.