Hraðar, hærra, lengra.....

Dagbók Ásu íþróttaálfs sem ættlar að labba í Everest base camp, læra að sigla kajak, renna sér á snjóbretti, skoða Nýja Sjáland og Ástralíu, Nepal, Kína, Indland, Suður Ameríku, Afríku, Króatíu og kannski líka Tunglið. Vera brimbrettagella á bikiníi, labba á fjöll, læra að kafa, veiða fiska og fugla og allt hitt sem henni dettur í hug. Bara ef að það er hraðar, hærra eða lengra en hún hefur gert áður....

Wednesday, June 28, 2006

Einhleyp. Síngúl. Ógift. Einstæð. Ólofuð. Piparmey. Makalaus. Piparjúnka. Jómfrú (?). Laus og liðug. Utan sambúðar. Einbúi. Barnlaus.

Orð yfir það ástand að hafa ekki stofnað sjálfstæða fjölskyldueiningu með annari manneskju af hinu kyninu. Orð um það að vera ekki eitthvað annað. Neikvæð forskeiti fyrir framan það sem telst innan viðmiðunarmarka samfélagsins fyrir fullorðinn einstakling. Ekkert orðanna sérlega jákvætt, alltaf ámynning um það sem er ekki, eða með áherslu á ein-leikann. Meira að segja Ítalir, þeir mikklu boðberar kvennfrelsis og jafnréttis (lesist með írónískum undirtón) hafa svo fallegt orð yfir það að eiga sjálfa sig óskipta.
Donna libera, hin frjálsa kona. Ekki áhersla á það að vera einn, eða hvað maður er ekki. Bara á mann sjálfan, frjálsan og sjálfstæðan einstakling.

Legg til að við hættum að nota öll þessi orð og tökum upp orð sem lýsir því að standa á eigin fótum, óstuddur af öðrum.

Sjálfstæðingur.

Tuesday, June 27, 2006

Dreymdi í nótt svo skrítinn draum, vaknaði með höfuðið fullt af hugmyndum og hugsanabrotum, resta af draumi sem ég man bara tilfinninguna úr en ekki innihaldið annað en það að í lokin var allt komið í lag. Morgundraumar sem koma ekki nema þegar að maður vaknar á venjulegum tíma og þarf ekki í vinnuna og getur sofnað aftur með góðri samvisku. Skrítnir draumar í björtum litum sem koma með sólinni inn um hálflokaðar gardínur.

Saturday, June 24, 2006

Starship Cloudgazer, stardate 2006:06.24.17:08,25........

Norðanátt og við róum með öldurnar í hliðina til að byrja með, kajakinn vaggar og ég er hrædd því þettað er annar bátur en síðast, mjórri og ekki eins stöðugur. Svo ég held mér nálægt landinu á meðan Böbbi og María fara dýpra. Plask, plask og ég finn smám saman jafnvægið, fer að treysta því að ég rúlli ekki yfir og drukkni flækt í svuntuna og vestið. Lásí ef það stæði í mynningargrein að ég hefði sett íslandsmet í drukknun fullorðinna á grunnsævi. Mesta lagi meter niður og smám saman hættir hjartað að hamast og áratökin verða skipulagðari, krampakennt takið á árinni mýkist og ég fer að njóta þess að horfa í kringum mig. Önd með nokkra unga forðar sér á spíttinu og strollan á eftir, mávar svífa að mér og tékka á því hvað er þarna á ferðinni, lítil kona í gulum plastkajak, ekkert ætilegt, kré, kré, fljúgum eitthvað annað, þarna er trylla, alltaf smávon um feita fiskilifur, kré, kré....
Við duggum áfram í sólinni, undir brúnna og inn í ósinn. Böbbi leiðbeinir mér með árina, ekki halda með svona þröngu gripi, slaka á í öxlunum, áfram með smjörið og við róum inn fyrir flugvallarendan og grúppum okkur saman til að slaka á og látum reka inn meðfram brautinni. Fáum sopa af ananasdjús og horfum upp í loftið á allar listflugvélarnar leika sér, í bestu sætunum af öllum. Og svo snúa við, frábært að vera búin að fatta þettað með stýrið, stíga og stýra, verst hvað ég er orðin dofin í hæ fætinum, en það hefst allt og ég ræ undir brúna með útfallinu. Allt í einu er einmana andarungi fyrir framan bátinn, skelkaður stingur hann sér á kaf og reynir að hverfa. Sé svo að hann kemur upp nokkrum metrum frá og ég er ánægð með að þurfa ekki að vera með það á samviskunni að hafa drekkt honum.Vona að hann fynni mömmu sína ræfilstuskan. Í áttina að Nökkva, ótrúlega lýjandi að róa svona með ölduna á hlið, en ég er ekki eins bangin og ég var á útleiðinni, fínt að hafa stýrið til að hjálpa. Farið að falla heldur mikið frá og báturinn strýkst við botninn á tveimur stöðum svo ég hætti mér aðeins lengra út og ræ hægt og róleg og tel áratökin, 20 tök, 5 lotur, hvíla í 5 andardrætti. Er allt í einu komin í djúpar pælingar um lífið og tilveruna og finn mér sjálfri til undrunar að ég er uppfull af einhverri óljósri hamingjutilfinningu.
Geimskipið Skýjaglópur býr sig til lendingar við rauðu húsin í Höpfnersfjöru. Skipstjórinn stýgur á land með kjánabros á vör.