Hraðar, hærra, lengra.....

Dagbók Ásu íþróttaálfs sem ættlar að labba í Everest base camp, læra að sigla kajak, renna sér á snjóbretti, skoða Nýja Sjáland og Ástralíu, Nepal, Kína, Indland, Suður Ameríku, Afríku, Króatíu og kannski líka Tunglið. Vera brimbrettagella á bikiníi, labba á fjöll, læra að kafa, veiða fiska og fugla og allt hitt sem henni dettur í hug. Bara ef að það er hraðar, hærra eða lengra en hún hefur gert áður....

Monday, January 23, 2006

Hvert næst?

Skýjaglópur er manneskja sem er alltaf að hugsa um eitthvað annað en það sem er fyrir framan nefið á sér, alltaf að dreyma. Mig dreymir.

Ég var að horfa á Discovery í vetur og það sat í mér setning sem einhver gamall kall sagði, "your passport is only valid in this life". Vegabréfið gildir bara í þessu lífi. Það er bara núna sem er hægt að nota það, ekki seinna þegar allt er komið á hreint, allt er sorterað og frágengið, skólinn, vinnan, karríerinn, afborganirnar, vísareikningurinn, búið að laga til í geimslunni, laga bílinn eða hvað það nú var sem er á listanum. Bara hægt núna, ekki seinna.

Mig dreymir. Um ferðalög og framandi slóðir. Mig dreymir um staði sem ég hef ekki séð, hluti sem ég á eftir að upplifa, fólk sem ég á eftir að kynnast. Mig dreymir um það að verða aftur fjallageit, labba um fjöll og fyrnindi. Mig dreymir um að enda næsta ár með því að labba í Nepal og sjá Everest.

Svo ég ætla að láta mig dreyma. Um fjall sem stendur upp úr skýjunum langt í austri. Og allskonar annað.