Hraðar, hærra, lengra.....

Dagbók Ásu íþróttaálfs sem ættlar að labba í Everest base camp, læra að sigla kajak, renna sér á snjóbretti, skoða Nýja Sjáland og Ástralíu, Nepal, Kína, Indland, Suður Ameríku, Afríku, Króatíu og kannski líka Tunglið. Vera brimbrettagella á bikiníi, labba á fjöll, læra að kafa, veiða fiska og fugla og allt hitt sem henni dettur í hug. Bara ef að það er hraðar, hærra eða lengra en hún hefur gert áður....

Monday, May 14, 2007

Langt síðan síðast.....

Vinna, vinna, vinna, vinna, vinna. Og vinna meira. Giskaðu á hvað ég er að gera? Vinna, aldrei þessu vant???

En vorið er komið og ég er alveg við það að komast í sumarfrí. Megaplön, hef bara engan tíma til að vera að standa í þessari vinnu alltaf hreint, vantar bara góða fyrirvinnu eða vísakort með einstreymisloka og ótakmarkaðri heimild.... USA, Kanada, Noregur, kannski Ítalía-hvernig á ég að anda næsta vetur ef ég kemst ekki þangað??? Og ekki gleyma Íslandi. Var að fá nýja Tusconinn minn, svartann og pæjulegan með sólgleraugngeymslu og dökkum rúðum..... Micran seldist svo hratt að ég gat ekki einu sinni sagt bless, en hún fékk víst gott heimili sagði sölumaðurinn svo ég er hætt að skæla. Vissi samt ekki að það væri svona auðvelt að venjast því að bíllinn manns fari í gang í fyrsta og sætishiti...mmm, hverngi er hægt að lifa án þess? Svo núna er ég að plana hálendisferðir fram og aftur, labba Laugarveginn í ágúst, kajak á Langasjó, Herðubreiðarlindir, Askja, Laugarfell, Þórsmörk, Flateyjardalurinn, Mývatnssveit. Og allt.

Frænka í ameríku er orðin eins árs og líkist mér alltaf meira og meira-gvuð hvað hún er sæt! Fæ að sjá hana í júlí og hafa Andra og Sonju í júní og kannski eitthvað í ágúst. Broskarlar á dagatalinu alla daga í sumar, nema þegar að ég er að vinna. Til skiptis á vakt og flugvakt, sef bara í haust.....




Lína á þríhjólinu sem amma gaf henni......