Hraðar, hærra, lengra.....

Dagbók Ásu íþróttaálfs sem ættlar að labba í Everest base camp, læra að sigla kajak, renna sér á snjóbretti, skoða Nýja Sjáland og Ástralíu, Nepal, Kína, Indland, Suður Ameríku, Afríku, Króatíu og kannski líka Tunglið. Vera brimbrettagella á bikiníi, labba á fjöll, læra að kafa, veiða fiska og fugla og allt hitt sem henni dettur í hug. Bara ef að það er hraðar, hærra eða lengra en hún hefur gert áður....

Sunday, December 31, 2006

Far vel 2006

Nú árið er liðið í aldanna skaut etc etc. Ákvað í fyrra á þessum tíma að gera hlutina öðruvísi. Ákvað að vera ekki hrædd, vera ekki með áhyggjur af því hvað hinum fyndist, vera bara ég og prófa. Allt. Ekki segja nei við neinu sem var í boði, ekki bakka inn í skel og þora ekki því eihverjum öðrum gæti þótt það lummó, halló eða hvað sem er. Þora, vilja, geta. Áfram hraðar, hærra og lengra.

The year of living dangerously. Tókst bara nokkuð vel, gerði allskonar hluti sem ég hef ekki gert áður, prófaði eitthvað nýtt í hverjum mánuði og það var svo gaman...... Snjóbrettast með Daan, gracie mille fyrir kennsluna..., kajakferðir, gönguferðir, hlaupa og hjóla og dansa og tjútta. Fóstra kanínu, grilla í snjókomu, horfa á stjörnurnar og norðurljósin og sólina og tunglið. Ferðast. Vestmanneyjar, Ítalía, Ísland, heimurinn er leikvöllurinn minn og ég er fær um allt.....

Ár til að eignast nýa vini, ár til að kynnast gömlu vinunum betur, ár til að knúsa og faðma og gefa öllum að borða sem mér þykir vænt um. Ár til að þykja vænt um fólk og þora að segja það upphátt.... Ár til að prófa eitthvað nýtt og vera ekki hrædd við það óþekkta, ár til að breyta þvi hver ég er og skilgreina upp á nýtt, ár til að reyna á þolrifin og ýta á markalínurnar, stytta bilið milli þess sem ég er og vil vera. The year of living dangerously.

Hvernig hljómar "the second year of living dangerously"???

0 Comments:

Post a Comment

<< Home