Jólablogg...
Eru ekki komin jól einu sinni enn? Ekki búin að vera neitt sérstaklega mikið í jólastuði undanfarið, nennti ekki að baka smákökur, nennti ekki að vinna, nennti ekki neinu. Sennilega kominn tími á smá frí. Foreldrarnir stóðu sig nú samt vel, mamma eldaði jólarjúpur með hefðbundnum hætti, nammi namm. Endir samt bundinn á jólastemminguna klukkan hálf átta, kölluð út í sjúkraflug og kom ekki heim fyrr en undir miðnætti. Rétt náið að knúsa gömlu og oppna pakkana og fara svo heim að sofa. Önnur tilraun í kvöld, ættlum að elda önd og alles. Vona að heilsufarið á þjóðinni verði betra svo að ég geti haft það náðugt, alltaf sama letin í mér.
Er samt ekki alveg að fíla jólin eins og þau eru orðin. Hvað varð um það að allt ætti að vera afslappa? Er það alveg gleymt? Sat í fílukasti á þorláksmessu, alveg búin að fá upp í kok af æsingnum og eyðslunni, heimtufrekjunni og stressinu á öllum. Búin að ákveða að næstu jól fer ég í Bónus 22. des, kaupi vel af mat, set í húsbílinn hans pabba og keyri þangað til ég finn staðinn þar sem myrkrið er dimmast og slekk á gemmsanum og læt ekki sjá mig fyrr en á annan í jólum. Nú þegar eru komnir 4 sem ættla með, svo sennilega verðum við að fara á tveimur bílum...
Ása skröggur.

1 Comments:
At 4:59 AM,
Anonymous said…
Hæ Skröggur!
Gleðileg jól. Ég tók á móti einhverjum Vestfirðingnum sem þú færðir okkur jólavaktafólkinu á Hringbraut eldsnemma að morgni 2. jóladags. Stuð í bæ þar :)
Annars finnst mér þessi hugmynd þín um bíla-jól ekkert svo óvitlaus næstu jól, count me in!
Kveðja, Ólöf
Post a Comment
<< Home