Hraðar, hærra, lengra.....

Dagbók Ásu íþróttaálfs sem ættlar að labba í Everest base camp, læra að sigla kajak, renna sér á snjóbretti, skoða Nýja Sjáland og Ástralíu, Nepal, Kína, Indland, Suður Ameríku, Afríku, Króatíu og kannski líka Tunglið. Vera brimbrettagella á bikiníi, labba á fjöll, læra að kafa, veiða fiska og fugla og allt hitt sem henni dettur í hug. Bara ef að það er hraðar, hærra eða lengra en hún hefur gert áður....

Wednesday, July 12, 2006

Sumarleysi

Ef að einhver veit af hverju það er ekki komið sumar má láta mig vita.... Hér er kuldi og trekkur, rigning og leiðindi og sko ekki sumar fyrir fimmkall. Svo engin stór íþróttaafrek.
En ég fór til höfuðborgarinnar að eyða peningum, tókst bara afspyrnu vel upp þó ég segi sjálf frá, keypti ma Deuter bakpoka og North Face Tadpole tjald. Mmmmm, merkjasnobb, elska að eyða peningum í útivistardót eins og ég sé á leiðinni í ógnarlegan hnattleiðangur.... Er nú samt bara á leiðinni í Fjörðurnar í 4 daga og svo til bella Italia í ágúst, en hver veit....

En við Sonja frænka vorum miklar pæjur og fórum út að borða humar á Stokkseyri, reyndar kom í ljós að frænka borðar ekki humar, finnst hann "ógíslegur" og hrillti sig við hvern humarhalann sem ég reif í sundur með handafli og sleykti hvítlaussmjörið af með græðgi og slettum... En mér fannst nú kjúklinganaggarnir hennar ekki mjög lekkerir svo við vorum sáttar!

Svo prófaði ég nýja tjaldið á lóðinni hjá Orra ásamt Therma rest dýnunni með kvennasniðinu og Marmott Teton W dúnpokanum mínum (ha!, tvö merki í viðbót, sá sem á mest dót þegar að hann deyr vinnur!!!) og það reyndist allt vel í sunnan roki og rigningu. Hlakka mikið til að prófa hvernig gengur um helgina, þessi nótt lofaði allvegana góðu. Nema að það er rosalega langt síðan að ég svaf á einhverju öðru en rúmdýnu. Á einhver bakverkjatöflu?

0 Comments:

Post a Comment

<< Home