Þegar að ég var 17 tók ég bílpróf. Ég lenti ekki í neinum alvarlegum árekstri fyrr en mörgum árum seinna. Grútsyfjuð eftir siðasta vorprófið á 5. ári tók ég vinstri beygju á móti rauðu ljósi inn í umferðina á vesturlandsveginum, á Dayhatsu Charade og fékk lítínn Renau Clio í farþegahliðina. Allt í klessu, báðir bílarnir gerónýtir, allt nema fólkið í hinum bílnum og ég. Marin og blá eftir beltið, tognuð á bakinu og hálsinum með slæmt mar á fætinum sem var marga mánuði að verða gott. Næsti bíll á eftir Clioinum var upphækkaður, stór jeppi sem lenti ekki á mér af því að ég var heppin. Óendanlega heppin.
Eitt andartak af gáleysi og ég setti lífið mitt og fólksins í hinum bílnum í hættu. Eitt andartak þegar ég var ekki með athyglina við það sem ég var að gera, eitt andartak þegar að ég ákvað að keyra heim frá bróður mínum í staðin fyrir að gista eins og mér var boðið, eitt andartak þegar að ég gerði ekki rétt, eitt andartak sem hefði getað orðið svo afdrifaríkt að það hefði litað allt lífið mitt ef að ég hefði ekki verið heppin. Óendanlega heppin.
Ég hugsa alltaf um þettað þegar að ég les eða heyri um bílslys, þessi andartök þegar að bílinn minn kastaðist til, hljóðin og glerbrotin og hvað ég varði hrædd. Undanfarna daga hef ég husað um þettað oft. Og ég verð glöð yfir því hvað ég var heppin. Óendanlega heppin.
Keyrið varlega og notið bílbeltin.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home