Dauðasyndirnar sjö
Ein af dauðsyndunum er matgræðgi, gluttoni. Munið þið ekki eftir þessu frábæra atriði í Seven með feita manninum sem sprakk af ofáti?
Varð hugsað til þess í vikunni þegar að ég fékk skyndilega og nær óviðráðanlega löngun í kókosbollu og kók. Eftir nokkuð ítarlega yfirferð yfir verslandi bæjarins kom í ljós að það er ekki hægt að kaupa staka kókosbollu lengur!
Hvert er heimurinn að fara? Bara til pakkar með 4 stykkjum. Ekki misskilja mig, hér í denn þegar ég var ekki orðin íþóttaálfur átti ég það alveg til að gúffa í mig 4 kókosbollur og langa í fleiri, en núna ef stefnan tekin á það að verða há og grönn, með svanaháls og bambaaugu, svo þá gengur það ekki lengur. (Og ekki vera með nein leiðindi um það að það sé hægt að borða eina og geyma rest...)
En hvert stefnir þetta eiginlega? Erum við að verða eins fyrrt og ameríkanar í því hvað okkur finnst vera eðlilegur skammtur af mat? Hver heldur í alvörunni að það sé í lagi að borða 4 kókosbollur? Leitaði lengi að einhverju littlu súkkulaðistykki í Essó og fann falið milli júmbóstærðar af Snikkers og risastórra nammistykkja lítið rommí sem maður hálf skammaðist sín fyrir að vera að kaupa, tók því varla það var svo lítið. Er nema von að offita sé að verða stærra og stærra vandamál þegar að þú getur ekki lengur fundið nema fjölskyldustærðir af mat og drykk?
MIG LANGAR Í EINA KÓKOSBOLLU!!!! HVAÐ ER SVO ERFITT VIÐ ÞAÐ?!?!?!
Bendi fólki á að lesa þá frábæru bók "The fast food nation" eða sjá "Supersice me", báðar frábærar úttektir á skyndibitamenningunni og því hvað stóru keðjurnar eru í raun rotnar að innan. Vissuð þið td að það eru búin til ilmefni með kjötlykt með sömu aðferðum og við ilmvatnsframleiðslu og svo spreyjað yfir ameríska borgara til að fela hvað kjötið er í rauninni vont?
Ef við pössum okkur ekki verður bráðum opnað útibú frá "Sam´s Club" og við getum farið að versla 5 lítra majóneskrukkur og 2 kg Skittles poka og keyrt um í rafmagnsdrifnum offituhjólastólum. Og þá fást sennilega bara 12 kókosbollur í pakka.

1 Comments:
At 12:03 PM,
Anonymous said…
Hæ hó!
Vá hvað ég er sammála þér með þessa magn-áráttu sem hefur heltekið þjóðina. Þetta er svo dulbúið undir nafninu "fjölskyldupakkning" - my ass.
Áfram Ása!
Post a Comment
<< Home