Breyttir fjölskylduhagir
Loxins komin með sambýling, kanínukarl sem heitir Karl Gústaf (í höfuðið á kónginum) og er þrílit japönsk dverkkanína. Hann ættlar reyndar að búa á svölunum þar sem ég er með ofnæmi, en mig hefur bara alltaf langað að eignast kanínu. Reyndar langaði mir líka að eiga hest þegar að ég var lítil, en svalirnar mínar eru ekki nógu stórar (búin að mæla) og svo væri kannski soltið erfitt að hífa hann upp og niður af þeim ef ég ættlaði í útreiðartúr.
En eins og svo oft áður í samböndum mínum við karlkynið virðumst við ekki alveg vera að ná saman um það hver var tilgangurinn með því að hann kom inn á heimilið. Ég sá fyrir mér að við myndum sitja fyrir framan sjónvarpið á rólegum kvöldum og kúra, svona til að uppfylla hjúfurþörfina sem ég fæ hvergi útrás fyrir annarsstaðar. En kanínukjáninn er víst minna fyrir það að láta klappa sér en að skoða heiminn, hoppandi um allan hvíta sófann minn og nagandi fínu sófapúðana leit hann allavegana út fyrir að vera að skemmta sér afspyrnu vel áður en hann skeit i bútasaumsteppið mitt og var settur í skammarkrókinn á svölunum! Vantar einhvern kanínu, búrið fylgir frítt með!!!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home